Ummæli
Ummæli:
2003
Við
hjónin ákváðum
í janúar árið
2003 að hefja undirbúning að
flutningi til Danmörku. Við ákváðum
að setja stefnuna á Århus.
Maðurinn minn var ákveðinn
í að fara í Tölvunarfræði
við Århus Universitet. Ég
var ákveðin í því
að læra dönskuna betur,
þar sem ég stunda nám
við Kennaraháskóla Íslands,
með dönsku sem kjörsvið.
Við vorum búin að heyra
að það gæti orðið
erfitt að finna húsnæði
og komast inn í kerfið. Þegar
við vorum að skoða Íslendingarfélögin
sáum við auglýsingu
frá Sigrúnu á heimasíðu
Íslendingafélagsins í
Álaborg. Við skrifuðum
niður netfangið hjá henni
og ætluðum að hugsa málið.
Við byrjuðum sjálf að
leita á netinu, en sáum
fljótt að við þekktum
ekkert til þessara svæða
hér og við lentum strax mjög
aftarlega á lista um leiguíbúð
hjá leigufélagi.
Þá
strax ákváðum við
að hafa samband við Sigrúnu,
það var í kringum mars.
Við höfðum mjög sérstakar
kröfur vegna hundsins okkar, sem
við tókum með okkur, og
vildum fá auka svefnherbergi fyrir
ættingjana! Þetta gerði
leitina að húsnæði
erfiðari fyrir okkur, en Sigrún
lét það ekki á
sig fá. Hún tók mjög
vel í þetta og skipulagði
okkar mál strax. Það
var ekki nóg að finna rétta
húsnæðið fyrir okkur,
heldur skipti staðsetning okkur líka
miklu máli. Við vildum vera
á rólegum stað þar
sem við gætum notið náttúrunnar
og farið með Cujo, hundinn okkar,
í góða göngutúra!
Sigrún fylgdist
vel með húsnæðum
fyrir okkur. Kíkti á húsnæði,
tók myndir og sendi okkur. Við
fundum svo draumastaðinn, lítill
bær sem heitir Knebel í 45
mín fjarlægð frá
Århus. Við erum í nýju
raðhúsi á tveimur hæðum
á frábæru svæði
með miklum útivistarmöguleikum.
Hér er mikil ró og æðislegt
að vera. Hér get ég
lært í rólegheitum
og farið í langar göngur
með Cujo. Elvar kemur heim eftir langan
skóladag og getur slakað á
og lært. Við fáum okkur
svo göngu á ströndinni
og horfum á sólsetrið!
Við erum í sannkallaðri
paradís og erum rosalega ánægð
hér.
Sigrún tók við lyklunum
fyrir okkur, reddaði símanúmeri,
ADSL tengingu, góðum bíl
og hefur verið í stöðugu
sambandi við okkur á meðan
á öllu þessu stóð.
Þegar við komum hingað hitti
hún okkur og sýndi okkur
umhverfið okkar, bæjarskrifstofuna,
setti upp bankareikning með okkur
og svo margt fleira sem okkur óraði
ekki fyrir! Hún hefur alveg bjargað
okkur og gert flutning okkar hingað
miklu einfaldari og þægilegri.
Við mælum
tvímælalaust með þjónustu
Sigrúnar. Þjónusta
hennar er svo miklu meira en bara það.
Henni stendur ekki á sama og fylgist
enn þá með okkur um hvernig
gengur.
Allt um okkur og
okkar flutning á http://nemendur.khi.is/johahel/
Kveðja Jóhanna,
Elvar og Cujo
2003
Ég
og fjölskylda mín vorum að
flytja til Árósasvæðisins
í sumar (2002)en ég var
að hefja framhaldsnám við
Verslunarháskólann. Við
þekktum engann sem gat aðstoðað
okkur, vorum búin að láta
skrifa okkur upp hjá ýmsum
húsaleigufyrirtækjum en ekkert
skeði og við vorum vægast
sagt byrjuð að verða áhyggjufull.
Við fréttum
af tilviljun af Sigrúnu þegar
við skoðuðum heimasíðu
íslendingafélagsins í
Árósum. Þökk
sé henni hefur allt í sambandi
við flutning okkar gengið alveg
snuðrulaust fyrir sig. Sigrún
fann hús fyrir okkur til leigu
í litlum bæ 20 mín
keyrslu frá Arósum í
mjög fjölskylduvænu umhverfi.
Hún var búin að ganga
frá öllu þegar við
komum til landsins! Hafði sóttu
um síma, internet og fleira. Hún
tók á móti okkur
þegar við komum og fylgdi okkur
heim að húsinu. Nokkrum dögum
seinna kom hún og fór með
okkur á manntalsskrifstofuna og
bankann, sótti um barnaheimili
fyrir dætur okkar og talaði
við skólastjórann og
sá til þess að vel var
tekið á móti stráknum
okkar sem var að fara í sjötta
bekk.
Allt hefur gengið
fullkomlega snuðrulaust fyrir sig
og fjölskyldan hefur það
eins og blóm í eggi í
Thorsager. Ég hef getað einbeitt
mér að því að
setjast á skólabekka á
ný og hef ekki þurft að
hafa neinar áhyggjur!
Ég get af
heilum hug mælt með Sigrúnu
sem 'súper reddara' og að hún
er allra peninganna virði. Við
erum svo ánægð með
líf okkar í Thorsager og
Danmörku að ég
gerði heimasíðu fyrir fjölskylduna
sem ykkur er velkomið að líta
á.
Með kærri
kveðju,
Guðmundur Friðjónsson
|