|
Um mig
| |
Sigrun
Þormar
44
ára.
Útskrifaðist
sem hagfræðingur
(Oecon) frá Århus
Universitet 1990.
|
|
Reynsla:
2003: Ráðgjafi
hjá www.islandia.dk og www.sigrunthormar.dk
Á skrá sem útflutningsráðgjafi
hjá Útflutningsráði
Islands.
2001 til 2003 :
Ráðgjafi hjá Teknologisk
Institut í Árósum,
vann við outsourcing "úthýsing"
1997 til 1999 :
Eigið ráðgjafafyrirtæki
"Sigrun management" ráðgefandi
í markaðsfærslu. Viðskiptavinir:
Littlewoods (UK), Quelle (DE), Waschbäre
(DE), Daells Varehus (DK), Freemans International
(UK), Gudrun Forlag (DK), Natural Network
í samvinnu með Iðnþróunarfélögum
Eyjafjarðar- og Suðurnesja (IS)
1990 til 1997:
Framkvæmdastjóri Freemans
of London Danmark A/S
Kjarnahæfileikar:
Markaðssetning, viðskipta- og
almannatengsl.
Persónulegir
eiginleikar: Samviskusemi, atorkusemi,
skipulagshæfileikar.
Ævisaga í
stuttu máli:
Ég flutti
fyrst til Danmerkur sem barn árið
1969 og bjó á Kaupmannahafnarsvæðnu
í 3 ár, síðan
í Hirtshals á Norður
Jótlandi í 1 ár.
Ég þekki vel tilfinninguna
hvernig það er að setjast
inní nýjan skólabekk
í ókunnu landi þar
sem maður ekki skilur eitt orð.
Eftir stúdentspróf
flutti ég til Svíþjóðar
og bjó þar í 2 ár.
Danmörk átti þó
alltaf eitthvað í mér,
þannig að árið 1985
flutti ég og maðurinn minn
til Árósa og höfum
búið á svæðinu
síðan.
Af hverju ættir þú
að leita til mín?
Af hverju átt
þú að leita til mín,
en ekki bara redda þér sjálfur
eða með aðstoð vina og
kunningja sem hafa búið í
Danmörku eða búa hér?
Er ekki hægt að finna allt bara
á Netinu?
Svar:
Það þarf ekki að taka
fram að ég tala dönskuna
óaðfinnanlega, eftir að
hafa búið hér í
24 ár. Ég hef gífurlega
góð sambönd eftir 15 ár
í atvinnurekstri, hef stórt
netverk og þekki alla króka
og kima í danska kerfinu.
Ég hef þurft
að yfirstíga margar grensur,
bæði sem barn og fullorðin.
Ég tala dönskuna jafn vel
og íslensku ( kannski betur!),
þekki allt kerfið út
og inn, bæði allt sem viðkemur
einstaklingum og fyrirtækjum.
Ég er gífurlega
reynd, áræðanleg, og
þekki bæði danskan og
íslenskan kúltur og þjóðarsál.
Af hverju býð ég uppá
þessa þjónustu?
Hugmyndin að
þessari þjónustu kviknaði
af algjörri tilviljun, þar
sem ég hafði verið að
aðstoða ýmsa kunningja,
og vandamenn þeirra, sem voru að
flytja hingað og komst að því
að það var þörf
á svona þjónustu.
Það er nefnilega ekki nóg
að bara safna að sér fullt
af tenglum og ætla svo
að reyna að finna út úr
hlutunum sjálfur, þetta er
bara meira en að segja það!
Kunningjakona mín
var að flytja hingað til Árósa
og hringdi í mig frá Íslandi.
Hvað á ég að gera
? spurði hún. Mig vantar húsnæði,
síma, internet, tryggingar og bíl.
Ég vil að dóttir mín
komist í góðann skóla
og að allt gangi snuðrulaust fyrir
sig, getur þú hjálpað
mér? Þegar hún kom
til Árósasvæðisins
2 mánuðum seinna, flutti hún
beint inní hús sem ég
hafði leigt handa henni. Síminn
var tengdur og Netið klárt.
Búið var að tala við
skólastjórann í skólanum
fyrir dótturina og ganga frá
heimsókn í skólann.
Síðast en ekki síst,
bílinn stóð í
innkeyrslunni! Við fórum saman
og létum skrá hana í
landið, gengum frá tryggingum
og sóttum um bankareikning.
Þegar þessi kona ári
seinna keypti fyrirtæki, aðstoðaði
ég hana í því.
Hálfu ári seinna keypti
hún sér hús og auðvitað
aðstoðaði ég hana einnig
við það.
Hún var
mjög þakklát og allt
hafði gengið svo vel, að hugmyndin
kviknaði að www.sigrunthormar.dk
Reynslan hefur síðan sýnt
að þörfin er gífurleg
fyrir góða og áræðanlega
þjónustu af þessu tagi.
Á stuttum tíma er www.sigrunthormar.dk
orðin stór hluti af tilveru
minni, starf sem hefur uppfyllt þörf
mína fyrir að hafa meira samneiti
við islendinga og meira samband vi
gamla landið mitt Island.
|
Þér
er velkomið að hafa samband: |
|
|