mynd
::
::
::
::
 Heimasíða :: Sigrún G. Þormar - Bsc Oecon   Tlf/Sími:: Danmörk: 87 59 20 54 | Ísland: 847 5581
Email :: 
sigrun@sigrunthormar.dk
 

Fjármálaráðgjöf

Einkafjármál

Eru fjármálin í steik? Þurfið þið á ráðgjafa að halda í sambandi við fjármál, en hafið ekki áhuga á að greiða endurskoðanda eða lögfræðing til að líta á þessi mál fyrir ykkur. Ég er menntaður hagfræðingur, hef rekið eigið fyrirtæki í mörg ár og get veitt ykkur ýmsar ráðleggingar í sambandi við privat fjármál.

Leggið dæmið fyrir mig og við skulum líta á málið í sameiningu. Ef það er þörf á endurskoðanda eða lögfræðingi, get ég mælt með góðum mönnum sem eru sanngjarnir með þóknun

Ég býð uppá gerð fjárhagsáætlana fyrir bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Reikna út skattinn og gef upplýsingar um hvað þetta eða hitt kostar. Spurningarnar geta verið ótal margar:

  • Borgar það sig fyrir okkur að kaupa eða leigja?
  • Hvað kostar vatn í Danmörku?
  • Hvað kostar hitaveitan?
  • Hvað kostar rafmagn?
  • Hvað kostar framfærsla?
  • Hvernig er verð á tölvum og hvar er ódýrast að kaupa þetta eða hitt fyrir þær?
  • Hvað með skattalegt lögheimili?
  • Hvað er svokallaður ” íslendinga skattaafsláttur”?
  • Hvað fær maður í barnabætur?
  • Hvað fá einstæðar mæður í barnabætur?