mynd
::
::
::
::
 Heimasíða :: Sigrún G. Þormar - Bsc Oecon   Tlf/Sími:: Danmörk: 87 59 20 54 | Ísland: 847 5581
Email :: 
sigrun@sigrunthormar.dk
 

Velkomin

Ert þú að flytja til Danmerkur?


Vantar þig aðstoð? Ég veit i íslendingum persónulega aðstoð við flest sem hefur með flutninga til Danmerkur að gera. Veiti einnig aðstoð við val á skóla, skólaumsóknir, atvinnuumsóknir, fjármál og margt margt fleira


Hvað get ég aðstoðað ykkur við?

  • Húsnæði - leiga og fasteignakaup
  • Nám og skólar - leikskólar
  • Barnabætur
  • Bankamál
  • Tryggingar
  • Þýðingar
  • Ráðgjöf
  • Fyrirtæki - stofnun
  • Bókhald og ársreikningar

Þegar flutt er til annars lands eru margar spurningar sem vakna og margt sem þarf að huga að. Sérstaklega ef börnin manns eru að flytja t.d. til að hefja nám, eða maður sjálfur er að flytja og er með fjölskyldu.

Við viljum öll að allt gangi sem auðveldast og best fyrir sig, og að allt sé "öruggt”, að við þurfum ekki að hafa áhyggjur eða óttast neitt, en það er bara aldrei einfalt mál að flytja til annars lands! Maður þekkir ekki "kerfið" og það veldur streitutilfinningum. Allt er nýtt og framandi í byrjun, það er erfitt að gera sig skiljanlegan á skólabókardönskunni og erfitt að skilja danina. Ég get hjálpað og leyst úr flestum þeim spurningum sem kunna að vakna þegar flutningar af þessu tagi standa til.

Kannski þekkið þið engan sem býr í Danmörku og viljið bara fá almennar upplýsingar. Hikið ekki við að hringja til mín og ræða málin!
Þið íslendingar sem nú þegar búið hér: Þið getið líka haft samband, ég veiti ýmsa ráðgjöf t.d. í sambandi við fjármál, fasteignakaup, skattamál, umsóknir og margt fleira.
Hafið samband ef þið þurfið að láta þýða texta, ritgerðir eða fleira þ.h. Tek að mér ýmis textaskrif á dönsku.

Mitt sérsvæði er öll Danmörk. Ég er með viðskiptavini um allt land, bæði á Jótlandi, Fjóni og Sjálandi.